![]() |
|
Ultimate:
Æfingar eru á mánudögum klukkan 21:10, í Íþróttahúsinu við Hagaskóla, Neshaga 3. Æfingarnar eru öllum opnar, endilega látið sjá ykkur
Discgolfvellir:
Nú eru þrír alvöru vellir hér á landi sem eru öllum opnir.
Gufunes í Grafarvogi Þar er stærsti völlurinn og sá eini sem er með 18 körfur. Stórt kort er við bílastæðið sem lýsir vel vellinum. Fyrsta karfa er rétt við kortið.
Úlfljótsvatn Við Útilífsmiðstöð skáta
er skemmtilegur 9 körfu völlur sem er mjög "skátalegur" þ.e. hann liggur um fjölbreytt landslag. Fyrri hluti vallarins er í skemmtilegum furu- og greniskógi en seinni hluti liggur meðfram læk. Fyrsta karfan er fyrir ofan þjóðveg á móts við bæinn Úlfljótsvatn en síðasta holan er fyrir neða salernishúsin á tjaldsvæðinu.
Hamrar Akureyri
Þessi skemmtilegi og fjölbreytti völlur liggur fyrir ofan tjaldsvæðið að Hömrum en fyrsta brautin er reyndar inn á tjaldsvæðinu og þá er kastað yfir eina af tjörnunum sem þar eru. Völlurinn er mjög skemmtilegur og reynir töluvert á hæfni spilara. Hægt er að velja um bláa og rauða teiga.



Hafa Samband: info@frisbee.is
Copyright 2008 Frisbeeíþróttasamband Íslands, Kennitala: 410208-2370
